|
Luv<3
ef þú sérð mig labba með einhverjum öðrum, þá er það ekki af því mig langar til þess. það er vegna þess að þú varst ekki nógu hugrakkur til að labba við hlið mér. ef þú sérð mig brosa, þá er það ekki vegna þess að ég er búin að gleyma þér. það er vegna þess að ég er orðin of þreytt að gráta yfir þér. ef þú sérð mig lifa lífinu aftur, þá er það ekki því ég hef komist áfram. það er vegna þess ég hata að þú getir lifað án mín. ef ég verð ástfangin af öðrum, þá er það ekki vegna þess mig langaði til þess. það er vegna þess þú varst ekki þarna til að ná mér.
|
12.05.2009 18:39:29 / sunnabj
já í dag er vika nákvæmlega þangað til ég lendi á klakanum. Ég hef reyndar ekkert bloggað í tvær vikur en það hefur bara einhvernveginn verið geggjað mikið að gera og ég nennti því ekki. Það hefur samt ekki margt fréttnæmt gerst nema það að ég er með glóðurauga eftir föstudagskvöldið. Var að dansa við vin minn og af einhverjum ástæðum barði hann mig óvart !!! Magnað samt með þetta glóðurauga er að það virðist ekki vera að fara.. L Það er farið að verða brúnna núna og ég er ekki að fíla það !! Þetta sama kvöld bjuggum ég og Marianne til drykkjuleik úr veiðimann og urðum vægast sagt mjög hressar eftir það. Annars er byrjuð einhver skrítin vika hérna í skólanum, vikan fyrir sumarskólann. Sumarskólinn er í tvær vikur og þá eru ýmsar íþróttir sem maður hefur ekki í skólanum eins og surfa, beach volley og ýmislegt tengt sumrinu. Á mánudaginn var ég t.d. í fríi allan daginn, í dag var ég á æfingu og síðan töluðu þjálfararnir við okkur hvert og eitt. Það var mjög þægilegt og er ég mjög ánægð með það sem þeir sögðu um mig Á morgun verð ég síðan að mála allan daginn og á fimmtudaginn förum við í svona fótboltagolf þar sem við förum á einhvern golfvöll og erum með fótbolta og á föstudaginn er frí held ég. Þannig þessi vika verður rosalega easy Samt hefði ég ekkert á móti því þó svo það yrðu einhverjar fleiri æfingar í þessari viku. Á laugardaginn verður síðan svona tónlistar-festival það sem ýmsar hljómsveitir verða og er þetta allan daginn. Mamma, pabbi og strákarnir eru einmitt að koma á föstudagsnóttina og er mér farið að hlakka alveg geggjað til.. Síðan er það heim á þriðjudaginn. Vá hvað ég á erfitt með að trúa því að það sé komið að þessum degi, mér finnst ég vera búin að vera hérna svo stutt, og ég hefði ekkert á móti því að vera hérna lengur. Ótrúlegt samt hvað það verður skrítið að koma heim en mér er farið að hlakka rosalega til og þá sérstaklega til að hitta alla, komast á hestbak, fara í bað, fá almennilegan bjór - THULE - og fá almennilegan mat og ís. Héðan úr DK á ég örugglega mest eftir að sakna, fyrir utan skólans, kebab, veðursins og svo því að fara niður í bæ að versla, því það er svo mikið að geggjuðum búðum hérna. En ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili því ég ætla að fara að horfa á júróvísíon.. SJÁUMST EFTIR VIKU.. -Sunna með glóðuraugað.. 
»
27.04.2009 09:11:24 / sunnabj
Já ég veit ég bloggaði ekki um helgina en það er gild ástæða fyrir því þar sem gærdagurinn var nú ekki sá ferskasti. Á laugardaginn var haldið svona påskefrokost sem byrjaði klukkan 6 með mat og flottheitum og endaði þetta síðan inná Café-inu með partýi, en ekki hvað Þetta var mjög skemmtilegt kvöld fyrir utan það að ég eyðilagði myndavélina mína L og ég týndi lyklinum mínum af herberginu þannig ég svaf í TV-stuen en þegar ég kom heim um morguninn hafði einhver fundið hann og sett hann á hurðarhúninn hjá mér J En ég ætla núna í vikunni að skoða myndavélar hérna úti því ekki gengur að vera án myndavélar! Á fimmtudaginn og föstudaginn var fótboltamót í gangi hérna í skólanum. Þá komu aðrir lýðháskólar hingað og við kepptum við þá. Fyrir okkur stelpurnar var þetta mót bara eitthvað djók því unnum alla leikina okkar og engan undir 8-0. Meira að segja unnum við einn leik 21-1 þannig við fengum ekkert útúr þessu. En ég meira að segja skoraði eitt mark Strákarnir unnu líka sinn riðil en hjá þeim var miklu meiri spenna. Ég og fleiri mættum svo of seint í seinasta leikinn því honum var flýtt um klukkutíma og Abba bankaði á vitlausan glugga þegar hún ætlaði að ná í mig. Þannig stelpurnar spiluðu færri í einhverja 5-10 mínutur en það var allt í lagi því við komumst 3-0 yfir. Veðrið hérna er áfram bara mjög gott. Og er ég búin að fá lit en varð samt svo óheppin að ég fékk far eftir háu sokkana á mótinu L en ég verð þá bara að fara að tana en ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Reyni að vera duglegri að blogga. -Sunna Björk sem kemur heim eftir 22 daga.. 
»
21.04.2009 18:36:10 / sunnabj
Jæja ég er ekki dauð þó einhverjir séu farnir að halda það. Málið er bara að þetta andskotans net hérna er alveg búið að skíta á sig því það er svo hægt. En af mér er allt gott að frétta, páskafríið búið og ýmislegt. Í páskafríinu gerði ég nú ekki mikið enda var ég að jafna mig andlega eftir þessa nasistaferð sem við fórum í. En ég og Guðni kíktum til Álaborgar á Brynhildi og Anders og þar fórum við í dýragarðinn þar. Þar sáum við fíla, gíraffa, ljón, sebrahesta og eiginlega bara öll dýr sem finnast í heiminum. Ég varð frekar hissa á þessu því það er mjög kalt í Danmörku á veturnar! Hjá Brynhildi fengum við síðan pizzu og kokteilsósu og lásum vikuna þannig lífið gerðist bara ekki betra. Skólinn hefur bara gengið sinn vanagang nema það er farið að hitna aðeins í kolunum hérna því það er farið að verða ansi heitt á daginn hérna. Í gær láu allir úr skólanum í sólbaði og höfðu það gott. Svo um kvöldið var horft á bíó hérna úti, en þá voru sett lök á einn vegginn hérna og sjávarpi síðan notaður. Ég horfði reyndar ekki á þetta því það var verið að sýna Never back down og ég er nýbúin að sjá hana. Ég er síðan búin að vera edrú þrjár helgar í röð. Ég er nú frekar hissa á þessu!!!!! En það er allt í lagi með mig þó það lýti ekki þannig út og það sem meira er, er að ég á 1 og hálfan kassa af bjór! En það er engin hætta á öðru en að ég klári það áður en ég kem heim enda hin ýmsu djömm eftir. Svo er ég að mála á fullu og ég elska það. Mæli eindregið með þessu! Síðan núna á fimmtudaginn er að byrja fótboltamót hérna í skólanum. Þá koma lið úr öðrum lýðháskólum og keppa við okkur. Við stelpurnar erum með 2 sjö manna lið og það verður gaman að spila þó það sé ekkert gaman að spila 7 manna. Þetta er mót er 2 dagar og er ég nú orðin frekar spennt og ég ætla að reynda að láta taka einhverjar myndir af því. Æfingin í dag var síðan ógeðslega skemmtileg. Og ég var ógeðslega spræk, sjaldan verið eins spræk og í dag og það var svo gott veður að það var alveg hreint frábært  Ég er búin að kaupa mér útskriftarskó og haldiði að stelpan hafi ekki keypt sér háa hæla! Jább eitthvað sem ég hef aldrei átt og verður þetta því skrautlegt. Því síðast þegar ég var í háum hælum fékk ég þá hjá Öldu og þegar ég vakanði morguninn eftir þá var ég að drepast í mjöðmunum! En æfingin skapar meistarann og verð ég að æfa þetta jafnhliða fótboltanum Já en ég held að ég ætli ekki að hafa þetta lengra í bili og ég LOFA AÐ BLOGGA UM HELGINA ef ekki megiði lemja mig J og ég bið að heilsa öllum heima og þið þurfið ekki að sakna mín nema í 4 vikur núna J Sólar- og sumarkveðja Sunna Björk sem kemue heim eftir 28 daga.. J
»
08.04.2009 23:04:23 / sunnabj
Þetta var skrifað á sunnudaginn síðasta en afþví að netið hjá mér er búið að vera svo hægt þá gat ég aldrei sett þetta inn og ég ætla ekki breyta færslunni neitt. Þarna vissi ég heldur ekki af þessari ferð heldur hélt ég að ég væri að fara í eitthvað allt annað.Já það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast. Helst er frá því að segja að ég keppti æfingaleik með stelpunum í fótboltanum. Við vorum reyndar ekki nema 9, þar sem ein er fótbrotin og tvær voru veikar, þannig við spiluðum 7 manna bolta. Ég spilaði allan leikinn og var meira að segja í marki í korter og átti þar alveg dýrindis markvörslu sem ég er mjög stolt af. Við unnum 8-1 sem ég myndi segja bara býsna gott en ég kom ekki við sögu í neinu af mörkunum og markið sem við fengum á okkur var heldur ekki mér að kenna því það kom úr hornspyrnu. Ég lenti reyndar í því í leiknum að það var sparkað í mig eftir að boltinn var komin útaf og eins og flestir vita þá skipti ég aldrei skapi í leik en þarna var mér nóg boðið og ég horfði á hana eins og ég ætlaði að drepa hana og þá var hún fljót að biðjast fyrirgefningar Ég er síðan að fara að keppa á fótboltamóti í lok apríl en þá keppast íþróttalýðháskólarnir sín á milli. Sumarið kom á mánudaginn sem er bara geggjað! Það er búið að vera klikkað gott veður núna um helgina og ég brann meira að segja á föstudaginn, kemur á óvart !!!! Það var settur upp blakvöllur hérna í garðinum í gær og er hann búin að vera fullur síðan. Reyndar eru ekki margir í skólanum því að það eru einhvernveginn öðruvísi dagar á morgun, þriðjudaginn og miðvikudaginn og fólk mátti fá frí þessa daga ef það vildi. Við áttum að velja okkur eitthvað 2 af þrennu bæði mánudag og þriðjudag og valdi ég box og stomp (þar sem maður býr til hljóð úr hlutum) á mánudaginn en ég á eftir að velja fyrir þriðjudaginn en það var bara eitthvað glatað í boði þá eins og tangó, nudd þar sem maður nuddar með olnbogunum og klifur og síðan á miðvikudaginn er eitthvað sem engin veit hvað er. Helgin var öll frekar róleg sko. Ég horfði á tvo leiki í úrvalsdeild kvenna hérna í Danmörku. Síðan fór ég í blak, sem ég sökka í btw og málaði. Síðan er páskafríið að skella á og ætla ég bara að vera hérna í skólanum. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Bið að heilsa heim og ég kem heim eftir 44 daga. SURVIVOR DENMARK !! Ég er nú búin að vera í einn og hálfan sólarhring í svaðalegri óvissuferð og hérna kemur ferðsagan. Á mánudagsmorguninn klukkan 8.15 fór allur skólinn á samling eins og vanalega. Við áttum okkar einskis ills von en þegar á samling var komið var okkur sagt frá því að við værum að fara í ferð og myndum fá hálftíma til að pakka niður í bakpoka og það sem við áttum að taka með okkur voru aukaföt, regnföt, svefnpoki, auka skópar, vatn og hlý föt en við máttum EKKI taka með okkur pening, síma, úr eða myndavél. Ég náði að pakka þessu öllu nema regnfötum sen það var svosem allt í lagi því það rigndi ekkert að ráði. Eftir að við vorum búin að pakka hittumst við síðan aftur og þá var búið að skipta okkur niður í hópa og vorum við 5 í mínum hóp. Við fengum síðan einhverjar vísbendingar og varð þetta síðan að einhverjum ratleik hérna í Århus sem endaði á Brabrand vatni, sem er btw ógeðslega langt í burtu frá skólanum, og þar áttum við að fara á kanó út á vatnið og með kort og þar var líka hálfgerður ratleikur þar sem við þurftum að finna hvít blöð og á þeim var lítil mynd af einhverjum hluta á kortinu okkar og við áttum að finna hvar það var og á hverjum stað fengum við poka með einhverjum til að borða. Áður en við fórum út á vatnið var svo leitað í öllu dótinu okkar og tékkað hvort við værum með eitthvað sem við máttum ekki vera með og einn strákur í mínu liði var bæði með pening og nammi og var svefnpokinn hans tekin af honum. Þessi bátsferð tók um 3 tíma og veltum við næstum bátnum en þessir danir vilja kenna mér um það en ég er ekki alveg sammála en aftur á móti velti Guðni Þór sínum bát þannig að það duttu allir nema hann útí, og uppskárum við 16 rúgbrauðssneiðar, 6 áleggsneiðar, 1 pínulítinn rúsínupakka og 6 kexkökur. Og þegar við komum í land var sagt við okkur að við skyldum hugsa út í það þegar við borðuðum þetta að við fengum kannski ekki meiri mat! En allaveg fengum við okkur eina rúgbrauðsneið með áleggi og kexköku hvert. Eftir þetta var labbað með alla hópana upp á veg og þar beið okkar rúta og þegar inn í hana var komið var bundið fyrir augun á okkur og við keyrð eitthver lengst í burtu. Okkur var síðan hent út hjá einhverjum skógi og fengum kort sem við áttum að fara eftir til að komast á áfangastað. Engum hóp var samt hent út á sama stað. En allavega röltum við af stað og löbbuðum örugglega einhverja rúmlega 10 kílómetra því við villtumst og löbbuðum einhverja nokkra kílómetra aukalega. En þegar við komum á lokastaðinn á kortinu var farið að dimma og það sváfu alveg nokkrir hópar í grasinu þarna og voru örugglega að bíða eftir okkur því við vorum síðust. En minn hópur var strax tekinn og vorum við látin setjast niður með bundið fyrir augun og máttum við ekki sofna eða tala hátt því annars yrði svefnpoki einhvers tekinn. Við reyndar sluppum ógeðslega vel því við vorum svo stutt með bundið fyrir augun en það voru þarna hópar sem að þurftu að bíða ógeðslega lengi. Svo var farið með okkur inn í eitthvað hús og þar var tveimur liðum styllt upp saman og áttu að gera eitthvað til að vinna matarpakka og unnum við matarpakka númer 2, af 3, og í honum vorum 6 rúgbrauðsneiðar, nammi, 3 rúsínupakkar, 2 svalar, og 2 gulrætur. Eftir þetta var okkur síðan sagt að leikurinn hefði breyst og væri núna komið að svona ratleik þar sem við þyrftum að labba í skóginum og leysa þrautir á hverri stöð. Og þegar þarna var komið var orðið kolsvart úti og við á röltinu í einhverjum skógi með lugt á hausnum. En um nóttina leystum við örugglega 12-14 þautir og voru það ýmislegt eins og að púsla einhverri hillu saman, klifra upp í tré með bundið fyrir augun en samt í svona öryggisdóti því þetta vorum örugglega 5-6 metrar sem var klifrað en ég slapp við það, 2 úr liðinu þurftu að skríða í gegnum svona ræsi með vatni í og fórnaði ég mér í það en það var frekar erfitt því við gátum ekki skriðið á 4 fótum heldur þurftum við að skríða hermannaskrið og eitthvað ýmislegt bara. Á síðustu stöðinni áttum við síðan að bíða og máttum ekkert tala né sofna og var það geggjað erfitt því ég var orðin svo þreytt en ég náði því samt. Eftir síðustu þrautina var farið með okkur eitthvert og vorum við látin fá segldúk og áttum við að búa til skjól úr honum og þar fengum við að sofa. Reyndar hraut annar gaurinn í liðinu mínu þannig við hin 3 fengum lítinn svefn sem kannski skipti ekki máli því eftir ferðina í gær frétti ég að við hefðum fengið að sofa rétt tæpa 2 tíma. Þegar við vöknuðum síðan komumst við að því að þessi ratleikur var ekkert á enda og leistum við einhverjar 8 þrautir þann daginn og þær þrautir voru meðal annars að synda út á eitthvað vatn en sem betur fer þurfti ég ekki að gera það, en svo þurftum 3 úr hópnum að vaða í vatninum og náði það manni upp að mitti og þetta var sjúklega kalt, við þurftum að vaða annað ræsi sem var stærra en hitt en það var samt meira vatn í því, opna einhvern lítinn kassa sem átti að vera svona eins og gestaþraut þannig þetta var mjög flókið en stelpan sem átti kassan var búin að leyfa mér að prófa hérna í skólanum þannig að ég gat þetta og ýmislegt fleira. Á næst síðustu þrautinni þá átti 1 úr hópnum að vera með bundið fyrir augum og þreyfa á 2 trjám og svo að þekkja þau þegar bandið væri tekið frá augunum og það var sagt við okkur að ef hún gæti eitt af trjánum rétt þá kæmumst við kannski heim og á þessum tímapunkti voru allir orðnir svo þreyttir andlega og líkamlega að það vildu allir komast heim. Minn hópur gat eitt tré en þá var sagt við okkur að það við yðrum að hlaupa upp einhverja svakalega brekku sem er svona svipuð og nafirnar og við höfðum 2 mínútur til að gera það og auðvitað tókst okkur það ekki því við værum bæði svöng og þreytt. Á þessari stöð gat allt liðið farið heim líka og það voru nokkur lið sem tókst það en ekki okkur. En allavega varð það þannig að við fengum að senda einn úr liðinu okkar heim og varð það annar strákurinn og við leituðum að næsta áfangastað. Þegar við komum þangað fengum við að sofa í einhvern tíma samt bara undir berum himni. Svo þegar við vorum vakin þá var okkur sagt að við ættum að gera okkur tilbúin til að hlaupa eitthvað og það ættu 2 úr hverjum hóp að gera það. Þegar ég vaknaði var mér svo kalt að ég klæddi mig í fleiri peysur þannig þegar ég átti að byrja að hlaupa þá fór ég úr tveimur peysum. En allavega hlaupið var þannig að við áttum að hlaupa einhvern lítin hring, ca 200m, þarna þar sem við gistum og þegar við vorum og þegar við værum búin að því þá áttum við að taka dótið okkar og þá liðsmenn sem voru eftir og hlaupa einhverja leið sem hann var búin að sýna á kortinu og við fengum 20 mínútur til að gera það og á endastöðinni myndi rúta bíða og hún myndi bíða í 20 mínútur og eftir það myndi hún fara og þó maður sæi rútuna myndi hún ekki bíða. Þetta tók svakalega á taugarnar því á kortinu virkaði leiðin svo löng og ég var svo stressuð að það var svakalegt. Og við tókum á rás og strákurinn sem var eftir í liðinu mínu var algjör hetja og tók allar töskurnar sem við vorum með þannig hann var með 3 þungar töskur á bakinu. Þessi strákur var hópstjórinn okkar og hann er í geggjuðu formi og hefði getað hlaupið langt á undan okkur en hann beið eftir okkur og fylgdi okkur alla leiðina og hvatti okkur áfram og ef við hefðum ekki náð rútunni þá hefði hann ekki heldur gert það. En sem betur fer náðum við öll rútunni og var ég fyrsta stelpan í mark! Og ég hef aldrei verið eins fegin og á þessum tímapunkti! Og mér var svo mikið um að ná rútunni að ég skildi eftir peysurnar mínar sem ég fór í áður en hlaupið byrjaði því fyrir mig var ástandið orðið svo slæmt að það var nauðsynlegra að ná rútunni heldur en taka dótið mitt með. Sem betur fer var samt dótið mitt tekið þannig með. Þegar ég svona lít til bara er ég mjög fegin að hafa gert þetta en á meðan að þessu stóð var þetta hreint helvítia en ekkert smá mikil upplifun og er ég mjög ánægð að hafa farið í ferðina. Þegar við vorum síðan að keyra heim í rútunni var allt í einu öskrað að töskurnar væru dottnar út úr farangursrýminu og var ein taska sem lá á götunni og þá hefði farangursrýmið opnast en sem betur fer var þetta eina taskan sem datt út. Það sem hrjáir mig samt núna eftir þessa ferð er vöðvabólga, bólga í baki og þreyta í fótum en þetta var þess virði. Síðan í dag var haldin fundur og þar var talað um ferðina og fengum við íslendingarnir hrós fyrir að vera góð í þessari ferð. En ef það eru einhverjar spurningar þá endilega bara commenta  Bið að heilsa..  -Sunna Björk
»
30.03.2009 14:07:54 / sunnabj
Ég er enn á lífi. Þannig er mál með vexti að enn ein vikan er liðin og ekki nema 1 dagar eftir af mars! Magnað hvað þetta líður hratt. Í vikunni gerðist svo sem ekkert merkilegt held ég og gekk hún bara sinn vanagang. Á þriðjudaginn reyndar fórum við á svona Tyrkja markað hérna i Århus. Þar var hægt að fá allt mögulegt, þó aðallega voru veitingastaðir og ávaxtabásar og þar er hægt að fá mjög ódýra ávexti. Þetta er innandyra og var þetta frekar sérstakt. Á miðvikudaginn var fyrirlestur um jörðina, geiminn og stjörnuhvolfið og þessháttar, mjög gaman og áhugavert, sértaklega þar sem þetta fór fram á ensku þannig maður náði öllu. Núna um helgina er var síðan Friends Open þar sem nemendur hérna í skólanum máttu bjóða vinum sínum að koma og var dagskrá á laugardaginn sem endaði síðan með djammi. Það var rosalega gaman og vorum um 240 manns hérna í skólanum með nemendum. Ragga Silja mætti á svæðið og var geggjað gaman að sjá hana. Í gær fór allur dagurinn í að horfa á How not to live your life og eru þetta eitt mestu snilldarþættir sem ég veit um. Þeir eru reyndar bara 6 og það er ömurlegt. Síðan í gærkveldi horði ég á hryllingsmynd með nokkrum stelpum. Myndin heitir The Strangers og alveg ágæt EN ENDAR ASNALEGA!!!! Það fyndna við þetta allt saman var að það kom einhver inn í herbergið með grímu á hausnum og ég vissi ekki hvert við ætluðum og svo stuttu seinna komu þeir á gluggann hjá okkur. VÁ HVAÐ MÉR BRÁ. Í gær var síðan breytt klukkunni, og var hún færð einum tíma áfram þannig við erum núna 2 tímum á undan en ekki einum. Ég vissi þetta reyndar ekki fyrr en Marianne kom öskrandi inn í herbergið mitt um morguninn! Já en ég veit ekkert hvað ég á að segja meira því það er ekkert sem ég man í augnablikinu nema það að ég er að fara að spila æfingaleik á fimmtudaginn á móti sama liði og síðast held ég. Kannski ég komi með blogg eftir leikinn. En ég er farin að brasa eitthvað. Bið að heilsa öllum  -Sunna Björk
»
23.03.2009 14:06:22 / sunnabj
Sorry að ég bloggaði ekki í gær. Þannig er má með vexti að ég ætlaði að blogga í gær en fór að horfa á mynd með stelpunum og þegar ég kom aftur inn í herbergi var klukkan orðin frekar margt. Við horfðum á A beautiful mind og er þetta sjúklega góð mynd, mæli með henni! En nú er enn ein vikan byrjuð, ég taldi það saman í gær hvað ég á marga daga eftir og þeir eru ekki nema 57!!!!!!!!! Vá ég er ekki að trúa því að ég sé miklu meira en hálfnuð hérna!!! Í síðustu viku fengum við æðislegt veður og í 3 daga sat fólk bara út á svölum eða á grasinu hérna fyrir framan í sólbaði og slakaði á. Núna er reyndar rigning en ekkert kalt. Í vikunni gerðist síðan ekkert merkilegt svosem, það eina er að ég valdi mér myndmennt í staðinn fyrir dönsku og ég byrjaði í myndmennt á þriðjudaginn síðasta og er þetta ógeðslega gaman. Ég stefni á að verða næsti Picasso! En á föstudaginn kom Brynhildur í heimsókn og það var frábært að fá hana. Við kíktum svo niður í bæ um kvöldið og skemmti ég mér allavega vel. Hún fór síðan á laugardaginn þannig að hún missti af búningapartýinu. Það var rosalega gaman og mikið um flotta búninga. Við slógum köttinn úr tunnunni og fórum í allskonar leiki. Ég var reyndar edrú en skemmti mér samt alveg konunglega og ég er búin að setja myndir inn á facebook. En það er rosalega lítið annað að frétta hérna. Um næstu helgi er friends open en þá mega krakkarnir hérna bjóða vinum sínum að koma og verður ýmislegt skemmtilegt í gangi eins og life café á föstudaginn og íþróttir á laugardaginn sem enda síðan með partýi held ég. Á morgun er ég síðan að fara á einhvern markað einhverstaðar hérna í Århus og fer allur skólinn á þetta. En ég er að spá í að hafa þetta ekkert lengra í bili, blogga kannski í vikunni ef það gerist eitthvað skemmtilegt. En ég bið að heilsa öllum. -Sunna Björk. P.S. HVAÐ ER AÐ GERAST Í NÁGRÖNNUM???!!!!!!
»
12.03.2009 22:41:02 / sunnabj
PABBI ÁTTI AFMÆLI Í GÆR.. varð bara að koma því á framfæri..  Jæja þá er ég komin heim eftir 4 daga dvöl í Hollandi og Þýslandi. Hér ætla ég að koma með smá ferðasögu því það er farið að reka á eftir mér. Við lögðum á stað um miðnætti á föstudeginum síðasta. Þannig var að þetta er um 10 tíma ferðalag á fyrsta viðkomustað sem var í Þýskalandi en ég hef ekki hugmynd um hvað hann heitir :/ Þar sem við ferðuðumst yfir nótt þá áttum við að sofa í rútunni. Það var nú hægara sagt en gert að sofa því bílstjórinn stoppaði nokkrum sinnum og þá varð alltaf ógeðslega kalt í rútunni þannig það var eiginlega ekkert hægt að sofa á meðan hann var stopp, samt var rútan í gangi! Sumir voru samt með sængurnar sínar og allan pakkann en ég klikkaði á því, tók bara með mér kodda. Þegar við vorum komin til Þýskalands stoppuðum við hjá einhverjum leikvangi því seinna um daginn áttum við að sjá leik Hamburg og Borussia M'gladbach. Við höfðum ekkert að gera í nokkra tíma þannig allur hópurinn fór í miðbæjinn en að komast í miðbæjinn tók örugglega 50 mínútur því við vorum labbandi! Sem betur fer þurftum við ekki að labba til baka því við fundum strætó sem gekk á völlinn og fengum við meira að segja frítt því við vorum með miða á leikinn. Leikurinn fór 4-1 fyrir M´glagbach. Eftir leikinn þurftum við svo að bíða í um klukkutíma eftir að komast af bílastæðinu á vellinum út af einhverjum öryggisástæðum eða eitthvað álíka, en þetta hafðist á endanum. Síðan tók við um 2 tíma rútuferð til Hollands en þar vorum við í bæ sem heitir Venlo, eða vorum meira í útjaðri bæjarins. Þar vorum við á fínu hóteli þar sem við fengum frábær rúm, sjónvarp á herbergjunum og geggjaðan mat. Í hádeginu var alltaf forréttur og matur og á kvöldin var alltaf forréttur, aðalréttur og eftirréttur þannig þegar maður er orðin svona góðu vanur þá er ekki gaman að koma í matinn hérna í skólanum enda er búið að vera vondur matur í allar máltíðir eftir að við komum heim! Á sunnudaginn fórum við síðan út að hlaupa um morguninn og seinni pratinn fórum við á leik Twente og PSV. Það var hörkuleikur sem endaði með 1-1 jafntefli og kom jöfnunarmarkið í uppbótartíma. Ég sé mest eftir því að hafa ekki keypt mér Twente treyju því þær voru flottar og á afslætti, en auðvitað tókst mér að gleyma veskinu á hótelinu! Eftir það var haldið heim á hótel í góðan mat og eftirrétt. Á mánudeginum fórum við á fótboltaæfingu um morguninn og fórum þá á æfingu á grasi sem var GEGGJAÐ!!! Reyndar var þetta frekar mikil drulla en samt betra en gervigras. Síðan fengum við pásu og fórum aftur á æfingu um daginn. Í pásunni horfði ég á sjónvarpið og rakst fyrst á glæstar vonir og hofði á það en svo bara allt í einu byrjaði bara einhver þáttur þó svo glæstar væru ekki búnar. Ég var nú ekki lengi að finna aðra stöð en þá fann ég einhvern þátt sem heitir Animal cop en það fjallaði um fólk sem bjargaði dýrum frá illri meðferð. Ég horfði á þetta og varð agndofa yfir því hvernig fólk hefur það í sér að gera dýrunum þetta! Í þættinum var bjargað hesti sem var orðin svo grindhoraður að hann var bara við það að drepast og var farinn að missa tennurnar. Það merkilegasta við þetta var samt að eigandinn sagðist ekki sjá neitt að hestinum!!!! Svo var fjallað um hunda sem voru skildir eftir í bakgarðinum af eigendum sínum þegar þeir fluttu!!!! Og svo var lítill smáhestur sem var bjargað en hann var líka orðin grindhoraður!!!! Það var samt aldrei um sömu eigendurna að ræða. Og vona ég innilega að þetta fólk sem á þarna í hlut fái að rotna í helvíti fyrir þetta!!! En ég ætla að halda áfram með ferðasöguna. Eftir seinni æfinguna fórum við í sturtu og fengum kvöldmat og héldum síðan á leik Duisburg og FC Nürnberg, það var reyndar ógeðslega leiðinlegur leikur þar sem ekkert gerðist fyrr en 20 mín voru eftir af leiknum en þá fengum við 4 mörk og endaði leikurinn 2-2 og kom jöfnunarmarkið í uppbótartíma. Við héldum síðan heim á hótel og gistum þar síðastu nóttina okkar. Á þriðjudaginn fórum við svo til Amsterdam. Það var kosið um það deginum áður hvort við ættum að æfa á þriðjudeginum og fara svo til Amsterdam eða fara beint til Amsterdam og það var einn sem vildi æfa! En þegar við komum til Amsterdam þá höfðum við möguleika á því að skoða Ajax leikvanginn og fóru margir þangað, reyndar ekki ég. Ég og Sammi fórum og fengum okkur að borða á meðan við biðum eftir hinum og þar sem ég hélt að stelpurnar væru í skoðunarferðinni var ég ekkert að stessa mig. Þegar þau komu síðan úr skoðunarferðinni sá ég engar stelpur sem þýddi það að þær voru farnar að versla og ég þyrfti að hanga með stráknum. Við tókum lest niður í miðbæ og síðan var tekinn bein stefna á Rauðahverfið. Jújú maður hafði heyrt um þetta en ekki hefði ég trúað því fyrir mitt litla líf að það væri til staður eins og þetta í veröldinni því þarna voru stelpur og konur á nærfötunum í gluggum að selja sig!!!! Þetta var mjög skrítið og það sem var líka mjög skrítið var að sjá fólk vera að reykja marjúana og finna lyktina af þessu því það eru svona kaffihús þar sem fólk reykir þetta og það að labba framhjá kemst maður liggur við í vímu. En þar sem ég var þarna með eintómum strákum þá fór allur dagurinn, án gríns allur dagurinn, í að vera þarna því þetta er líka svo rosalega stórt svæði og í miðju svæðisins þar sem við vorum var kirkja. Ekki get ég ímyndað mér að það sé gaman að gifta sig þarna! Þetta var spes lífsreynsla. Um kvöldið fengum við síðan að borða og horfðum á leiki í Meistaradeildinni. Síðan var lagt af stað heim. Reyndar tók það klukkutíma að finna rútuna aftur því bílstjórinn var í einhverjum feluleik því við fundum hann ekki. Klukkan var um 11 þegar við héldum af stað úr Amsterdam og áttum við að sofa í rútunni á leiðinni heim. Það gekk betur en á leiðinni til Hollands því rútubílstjórinn stoppaði bara einu sinni og þá varð kalt í rútunni. Við stoppuðum síðan á landamærunum á milli Þýslands og Danmerkur þar sem ég byrgdi mig upp af bjór og nammi því það var miklu ódýrara að kaupa það þar heldur en í búðunum hérna í Danmörku. Það er nú ekki frásögu færandi nema að kortið mitt virkaði ekki í búðinni. Ég var næst síðust í röðinni og ætlaði að borga með Vísa kortinu mínu en það virkaði ekki. Krakkarnir voru farnir að bíða í rútunni því ég var búin að vera korteri lengur en við máttum vera útaf kortinu. Það virkaði svo loksins þegar búið að var að taka posann úr sambandi og mikið var ég fegin þá. Því ekki hefði það nú verið gott að þrufa að skilja áfengið eftir!! en við vorum svo komin heim í IHÅ um 10 um morguninn. Af mér er svo bara allt gott að frétta. Er reyndar komin með pínu hálsbólgu og ætla ég að kenna rútubílstjóranum um það. Fór síðan í bæjinn í dag og verslaði 2 peysur og 1 bol og sagði við sjálfa mig að það væri í lagi að ég keypti þetta því ég keypti ekkert í Amsterdam. En ég ætla að hafa þetta gott í bili og bið að heilsa öllum. Það fara síðan detta inn myndir á facebook. Bestu kveðjur í heiminum -Sunna Björk
»
06.03.2009 22:53:18 / sunnabj
jább ég er farin.. ég bið að heilsa öllum og hafið það ógeðslega gott.. lofa að blogga þegar ég kem til baka..
»
03.03.2009 18:12:22 / sunnabj
Já það eru sko liðin 20 ár síðan ég fæddist og mér finnst eins og það hafi verið í gær! Rosalegt hvað tíminn flýgur. En ég fékk afmælisgjafir sendar hingað frá fjölskyldunni og sá orðrómur gengur að ég eigi von á fleirum Annars fékk ég Cintamani flíspeysu frá mömmu og pabba ;* 66°N húfu frá Arnari og Hirti ;* og úr, nammi, eyrnaband og krem frá ömmu og afa ;*Ég fékk köku á afmælisdaginn frá skelltum við okkur í bíó líka á He is just not that into you. Hún er alveg sæmileg, ekkert meira en það. Á laugardeginum reyndar fórum við íslensku krakkarnir út að borða og fórum á Jensens Boffhus. Þar fékk ég mér alveg dýrindis steik. Eftir það fórum við á pöbb sem heitir Sherlock Holmes pub og er þetta bara einn flottasti pöbb sem ég hef farið á og ég ætla sko þangað aftur. Reyndar er ekkert sniðugt að vera að kaupa sér bjór á pöbb því þetta er svo dýrt L Þar fengum við okkur samt einn bjór og síðan var haldið heim aftur. Í skólanum var svona rejúníon hjá 5, 10, 15, 20, 25 og þannig stúdentum héðan úr skólanum. Við máttum taka þátt í þessu og vera með á ballinu á eftir en þetta var svo leiðinlegt að ég var komin snemma heim og opnaði pakkana mína! Afmælisdeginu eyddi ég svo í að hafa það gott og fara í bíó J En héðan er allt gott að frétta svo sem. Allt gengur sinn vanagang og tíminn alltaf jafn fljótur að líða. Það styttist í Hollandsferðina mína en ég er að fara eftir 3 daga. Fer á föstudegi og kem aftur á miðvikudegi. En ég hef ekkert meira að segja held ég. Bið að heilsa öllum á Íslandi  -Sunna Björk
»
26.02.2009 18:26:09 / sunnabj
Til hamingju með afmælið elsku Arnar minn og elsku Kristín ofurskvísa og njótið dagsins í botn! :* en hann elsku litli bróðir minn er 18. ára í dag og elsku sæta litla frænka mín hún Kristín Lind er 9 ára í dag Ég bloggaði á sunnudaginn síðast og síðan þá hef ég farið í ratleik. Þetta var einn sá asnalegasti ratleikur sem ég hef farið í. Þannig var að við fengum blað, í byrjun leiksins, með leiðinni sem við áttum að fylgja. Á blaðinu voru 14 reytir með mismunandi leiðum þannig það hafa verið um 14 miðar sem við áttum að finna en við stelpurnar fundum nú ekki nema 10 því þetta var ógeðslega asnalegt! Þessar leiðir sem við áttum að fara pössuðu ekkert við hvar miðarnir voru sem varð auðvitað til þess að mitt lið vann ekki en þessi ratleikur tók 2 ½ tíma og það rigndi þannig maður var feginn að komast inn þegar hann var loksins búin. Annars er frekar lítið að frétta. Föstudagur á morgun og mér finnst eins og vikan hafi verið að byrja. Þetta er brjálæði hvað þetta líður hratt! En í gær fékk ég nánari upplýsingar um Hollandsferðina sem ég er að fara í eftir viku. Við förum á föstudegi og komum heim aftur á miðvikudegi. Og á þessum tíma eigum við að fara á 2-3 leiki og æfa. Svo reyndar fáum við eitthvað af frjálsum tíma líka og við gistum á hóteli. Meira veit ég ekki! En á æfingu í dag vorum við stelpurnar í vítaspyrnukeppni sem ég vann!!!!! JÁ ÉG VANN!!! Og skoraði úr öllu og ekkert fór yfir Reyndar held ég að skotin mín séu öll að koma til því skotin sem ég átti á æfingunni í dag voru bara klassa skot sko Í dag fékk ég líka pakka. Í honum var nammi, afmælispakkar, bolir, blöð og sportþrenna. Það var búið að pakka gjöfunum inn og þarf ég nú að halda aftur af mér svo ég opni þá ekki. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Bið kærlega að heilsa öllum. -Sunna Björk
»
22.02.2009 18:05:56 / sunnabj
Þá er enn ein vikan liðin og ný tekin við. Það er ótrúlegt hvað þetta líður hratt og með þessu áframhaldi verð ég komin heim áður en ég veit af. Í seinustu viku gerðist ekki margt markvert að mig minnir. Ég tók heldur betur á því hvað heilsu varðar, er hætt að borða nammi nema bara á laugardögum og fer í ræktina 3-4 daga í viku eftir æfingar J Í ræktinni er ég að gera svona brennsluprógramm sem ég fékk hjá vini mínum hérna í skólanum og ætla ég að gera það næstu 2 vikurnar, eða þangað til ég fer í Hollandsferðina. Við fengum upplýsingar um ferðina í síðustu viku og förum held ég á 3 leiki, PSV, Ajax og svo einhvern einn enn en ég man ekki hver það var. Reyndar fengum við Íslendingarnir ekki miklar upplýsingar þar sem þetta fór allt fram á dönsku og þetta var á æfingu. En við verðum upplýst seinna. Mér er farið að hlakka geggjað til þessarar ferðar því auk þess að fara á leiki tökum við líka einhverjar æfingar þarna. Vikan sjálf var bara eins og hver önnur vika vakna, æfa, borða, danska/fælles fag, borða,sofa. Ég er farin að sjá bætingu á forminu hjá mér því ég er farin að passa í buxur sem ég tók með mér út og ég passaði ekki í og ég er orðin sneggri. Það kom þjálfaranum mínum á óvart hvað ég er snögg að hann talaði um það eftir æfingu og hann virtist mjög hissa en ég hef enn 3 mánuði til að bæta mig meira. Á föstudaginn skellti ég mér svo í keilu með krökkum í skólanum. Ég lenti í stelpuliðinu með Öbbu, Tanyu, Anne, Anne og Idu. Þetta var ógeðslega skemmtilegt og var farið alveg á kostum þarna. Abba gerði sér lítið fyrir og fleygði kúlunni yfir á aðra braut auk þess sem keilubrautinni okkar var lokað því of mögum keilum var hent í einu. En ég tek það fram að ég tók ekki þátt í því né Abba því við vorum á barnum og Abba var að blanda drykki. Þetta var semsagt þannig að stundum kom það fyrir að annaðhvort bleik eða græn keila lentu í miðjunni og þá átti að láta barþjónana vita og ef við náðum fellu þá fengum við frí skot. Reyndar var það nú þannig að við lugum bara að barþjónunum og þeir trúðu okkur alltaf og fengum við suddalega mörg skot þetta kvöld. Það sem lýsir því kannski best hversu ölvaður maður var orðin var að daginn eftir spurði ég Nynne, herbergisfélagann minn, hvort ég hefði nokkuð vakið hana og hún horfði á mig eins og ég væri eitthvað skrítin og sagði „þú varst komin heim á undan mér!“ þannig það hefur verið alveg tilgangslaust að læðast Laugardagurinn einkenndist af þreytu, en ég var ekki þunn Ég fór samt niður í Veri með Öbbu og Emmu og við fengum okkur að borða. Eftir það sofnaði ég og vaknaði ekki fyrr en Sigrún bankaði hjá mér og var það eftir kvöldmat, þannig ég missti af honum því ég gleymdi að stylla vekjaraklukkuna! En það var svosem allt í lagi því ég átti mat hérna og ég heyrði að maturinn hefði ekki verið neitt ógeðslega góður. Í gær var ég síðan edrú, reyndar eyddum við Arnar löngum tíma í að labba um skólann með popppoka og leita að fólki sem við fundum loksins á endanum. En ég fór bara snemma að sofa því í dag fór ég að horfa á Inga frænda spila körfuboltaleik hérna í Århus. Ég vaknaði klukkan 8 til að ná strætó og gekk þessi ferð betur en ég átti von á. Ég komst á leiðarenda á réttum tíma þó svo það hefði örugglega verið fyndið að fylgjast með mér því ég stóð stundum og snéri mér í hringi með upplýsingar á blaði eins og alvöru túristi. Ég þurfti að taka tvo strætóa og spurði báða strætóbílstjórana hvort ég væri ekki á réttri leið, síðan þegar ég var komin úr seinni strætónum spurði ég einhverja konu til vegar og svo þegar ég var búin að finna staðinn þar sem Ingi var að spila þá fann ég ekki innganginn! Þannig ég labbaði fram og til baka eftir gangstéttinni þar til ég rakst á einhvern mann sem hjálpaði mér að komast á leiðarenda. Leikurinn fór ekki alveg eins og hann átti að fara, eða liðið hans Inga tapaði en Ingi var samt langbestur í sínu liði Það var rosa gaman að hitta hann og aldrei að vita nema að ég kíki á hann og Dísu. Annars hefur dagurinn í dag verið rosa mikill letidagur enda er veðrið hérna ekki upp á marga fiska. Búið að vera vindur í allan dag og kalt. Um næstu helgi er svona heimferðarhelgi, þýði ég þetta eins og það stendur á stundartöflunni. Þá fara margir af dönsku krökkunum heim því það er frí fram á mánudag. Ég og bjórinn eigum reyndar tuttugu ára afmæli á sunnudaginn þannig það verður haldið upp á það með stæl svo það mun vera fámennt en pottþétt mun þetta verða góðmennt í partýinu svo á ég reyndar von á afmælispökkum í vikunni. Hlakka ekkert smá til  Annars held ég að ég hafi ekki mikið meira að segja í bili. Bið að heilsa öllum heima. -Sunna Björk sem verður tvítug eftir viku, og bjórinn líka.. 
»
15.02.2009 19:43:55 / sunnabj
Ég vil byrja á að óska mömmu til hamingju með afmælið.. :* en eins og ég sagði síðast komu krakkarnir heim úr skíðaferðalaginu síðasta sunnudag. Ég er ekki frá því að maður sé pínu fegin því það var hálf einmannalegt hérna án þeirra þó svo það hafi verið mjög þægilegt að vera einn í herbergi. En reyndar hefur aðeins verið ábótavant upp á svefn í síðustu viku því herbergisfélaginn minn var að þrífa í skólanum klukkan 7 á morgnanna og það versta við það er, er að hún vaknar 20 mínútum fyrr alltaf. Reyndar skil ég ekki afhverju því þegar ég var að gera þetta vaknaði ég 10 mín fyrr, klæddi mig og fór út. Reyndar skoðar hún sig í speglinum í 5-10 mínútur áður en hún fer. En sem betur fer er þetta búið, þetta var bara þessi eina vika. Ég fékk pakka á mánudaginn frá mömmu og pabba auk þess sem ég fékk bréf frá Bylgju og Hirti Ragnari og ætla ég að senda þeim til baka í vikunni. Annars reyndar gerðist ekkert merkilegt í þessari vikur held ég, nema að hún var fljót að líða eins og allar aðrar vikur hérna. Una átti síðan afmæli í gær og bökuðum við Marianne köku handa henni. Kakan var ógeðslega góð, reyndar var hún hallandi en það skiptir engu máli. Í gær var síðan partý, like always, og var skíðaþema. Ég reyndar mætti ekki í neinu skíðalegu en það voru flestir sem gerðu það samt. Þetta var mjög skemmtilegt partý þar sem ýmislegt átti sér stað, það var nefnilega gaman að vera edrú og sjá allt sem var að gerast. Og ég er að henda inn myndum síðan úr partýinu í þessum skrifuðu orðum. Síðan í dag var bara haft það notalegt og svo fór ég í fótbolta í kvöld. Þar lenti ég í því að sparka boltanum í punginn á einum og barði svo einn óvart í nefið þannig það lágu allir óvígir á vellinum eftir mig. Nei nei, þetta eru harðir strákar og láta ekki eitthvað svona á sig fá. Svo núna eru 2 vikur í afmælið mitt og 3 vikur í ferðina til Hollands og þegar sú ferð er þá er dvöl mín hérna í Århus hálfnuð og mér finnst eins og ég hafi bara verið að koma. Þetta er skrítið! En ég ætla að kveðja í bili og bið að heilsa heim á Frón.
-Sunna Björk
»
08.02.2009 19:47:42 / sunnabj
Jább friðurinn er úti. Krakkarnir voru semsagt að koma heim úr skíðaferðinni. Reyndar eru ekki allir komnir því önnur rútan bilaði og koma þau ekki strax. Þessi vika er sem sagt búin að vera rosalega rólegt og kannski einum of rólegt stundum. Lítið hef ég gert þessa viku, fór reyndar út að hlaupa, kíkti niður í bæ og róleg heit bara. Svo fæ ég örugglega pakka á morgun. Ég elska að fá pakka. Á miðvikudaginn mætti ég síðan kanínu þegar ég var á leiðinni í morgunmat. Það var þoka úti og svo sá ég bara eitthvað lítið skoppa um lóðina. En hún var ógeðslega sæt. Í gær fórum ég, Sigrún, Friggi og Sammi á ballið eftir íslendingaþorrablótið. Þar hitti ég Sunnu Björk og Sigrúnu auk miklu fleiri íslendinga. Spútnik var að spila og var þetta alveg geggjað gaman. Í dag lenti ég nú frekar fyndnu atviki. Ég ætlaði að hitta Sigþór niður í bæ og vissi ekkert hvenær strætóinn færi, ég átti að taka strætó númer 11. Svo þegar ég kem í skýlið þá eru 20 mín í næsta strætó og annar strætó, númer 12, rétt að koma. Þannig ég hringi í Sigþór og hann segir bara mér bara að taka 12 því þeir enda eiginlega flestir niður í miðbæ. Ég stekk upp í strætóinn og þegar strætóinn er lagður af stað hringir Sigþór og segir að ég hefi ekki átt að taka þennan strætó. Þannig þegar mér gefst tækifæri til að hoppa út þá geri ég það en þá var strætóinn kominn svo langt í burtu að ég gat ekki labbað til bara. en ég komst nú á endanum niður í miðbæ eftir að ég var búin að labba einhvern spöl fann ég strætó sem var á leiðinni niður í miðbæ. En já ég hef nú ekki frá miklu að segja þannig ég bara kveð í bili. Ég fer að setja myndir inn á facebook við tækifæri. Bið að heilsa öllum.  Kveðja úr Danmörku‘ Sunna Björk.. :*
»
02.02.2009 21:47:42 / sunnabj
... og 104 dagar eftir. Vá hvað þetta hefur liðið hratt!!! Héðan er samt ekki mikið að frétta svosem nema núna er ég í vikufrí á meðan eiginlega allur skólinn er í Ölpunum á skíðum. Þeir sem ekki fóru í síðaferðina eru 7 Íslendingar, 3 Grænlendingar, 5 Danir og allir Bretarnir. Reyndar fóru 6 Bretar til Þýskalands í morgun og eru að fara að spila með einhverju liði þar. Bresku stelpurnar fara síðan allar til Noregs á miðvikudaginn að spila með einhverju liði þar þannig það mun verða mjög fámennt, en góðmennt, hérna í IHÅ. Síðustu þrjá daga hef ég farið út að skokka og tekur það um klukkutíma að skokka þessa vegalengd. Ég skokka sem sagt í skóg sem er hérna nálægt og heitir Risskov held ég og ætla ég að reyna að skokka sem oftast það sem eftir er að dvölinni hérna, því ótrúlegt en satt finnst mér í fínu lagi að skokka þetta eins og mér finnst nú leiðinlegt að hlaupa. Biggi kíkti í heimsókn á okkur um helgina og það var bara gaman að fá hann J reyndar gerði ég ekki mikið um helgina, fór frekar snemma að sofa bæði kvöldin og hafði það bara rólegt.
Reyndar var sýning hérna um helgina sem kallast sexmas, held ég, og er einhverskonar kynlífshátíð. Það fyndna við þetta var að þetta var bara haldið í íþróttahúsinu við hliðina á skólanum. Ég veit ekki betur en að þeir sem fóru þangað hafi skemmt sér alveg konunglega. Það er búið að vera alveg ógeðslega kalt hérna síðustu daga og ég vona nú að það fari að lagast. Það hefur líka flensa verið að ganga hérna í skólanum og eru rosalega margir búnir að vera veikir, ekki ég samt og ætla ég að þakka íslensku mjólkinni fyrir það reyndar er ég búin að vera með kvef sem kallast nú ekki einu sinni veiki á Íslandi því þar er annar hver maður með kvef Maturinn hérna er ekkert að skána, reyndar er gott í matinn á laugardögum að síðasta laugardegi undanskildum. Á laugardögum fáum við líka alltaf eftirrétt, nema síðasta laugardag. Krónan styrktist alla síðustu viku og fór niður í 19.7 en tók svo upp á því að veikjast aftur í dag. Ég held að hún sé komin með flensuna sem er að ganga hérna! Svo fara öll afmælin að detta inn núna, Lilla amma átti afmæli 30. jan, Lárus Fannar áttu afmæli í gær, mamma á afmæli 15. feb, Arnar og Kristín 26. feb og pabbi 11. mars, og ég missi af öllum kökunum L Reyndar fæ ég köku á miðvikudögum, nema örugglega næsta miðvikudag, þannig ég bæti það bara upp á hverjum miðvikudegi borða ég fyrir hverja veislu Svo er nú afmælið mitt eftir mánuð. RÍKISALDURINN! Ég get auðvitað keypt mér bjór hérna og mér finnst þetta ekkert öðruvísi en að kaupa bara kók, það er kannski vegna þess að þetta er í svona matvörubúð en ekki í ríkinu. Ég til alveg endilega fá ábendingar um hvað hægt er að gera hérna í Århus svona þegar maður hefur ekkert að gera eins og á tímum eins og þessum. Reyndar ætla ég að reyna að plata einhverja með mér í Listasafni hérna. EN EF ÞÚ VEIST UM EINHVERN SKEMMTILEGAN STAÐ Í ÅRHUS LÁTTU MIG ÞÁ VITA Í KOMMENTI  En ég er að hugsa um að segja þetta bara gott í bili ætla að fara að lesa. Ég var nefnilega svo sniðug að taka með mér bækur, er að lesa Vetrarsól núna og er nýbúin með Skipið sem ég þarf btw að fá útskýringu á. Þarna var ég búin að lesa 400 og eitthvað blaðsíður og skildi bókina alveg þangað til það kom að síðasta kaflanum þá bara skildi ég ekki bókina! Þannig ef einhver hefur lesið hana og skilur hana þá má hann endilega deila þessu með mér, ég er búin að vera bara lost í 3 vikur útaf þessu J En engu að síður mæli ég með þessari bók sko, hún er góð  Bið að heilsa öllum  -Sunna Björk 
»
25.01.2009 15:01:53 / sunnabj
jæja það er best að henda inn bloggi á meðan ég er að bíða eftir þvottavélinni. Þetta er þriðja bloggið sem ég reyni að gera en af einhverjum ástæðum dettur það alltaf út. L En héðan úr Danmörku er allt gott að frétta. Tíminn hérna hefur liðið svo hratt að mér finnst eins og ég hafi flogið út í gær, og vonandi á það ekki eftir að breytast. Í upphafi þorra var ég svo lánsöm að fá pakka með öllum nauðsynjum til að búa hérna úti. Meðal þeirra nauðsynja sem voru í pakkanum var meðal annars harðfiskur, íslenskt nammi, fréttablöð og smákökur. Ég hef reyndar mest haldið mig innandyra með harðfiskinn því þessir danir kunna ekki gott að meta hvað hann varðar, ég hef ekki einu sinni þorað að fara með eitt flak í matsalinn og fá mér smjör á fiskinn. En þessi vika hefur verið heldur tíðindalítil. Á miðvikudaginn var Dogma festival og sýndum við þar verkefnin sem ég sagði frá í síðasta bloggi. Í staðinn fyrir stuttmynd ákváðum við að semja lag og sá breska stelpan í hópnum mínum um það. Í leikritinu lékum við að við værum í dönskutíma og áttum að segja eitthvað á dönsku um okkur sjálf og það vakti mikla lukku. Síðan þarf ég eiginlega bara að taka mynd af plaggatinu okkar. Á fimmtudaginn tókst mér síðan að meiða mig í hnénu en ég held að ég sé orðin góð núna, gat ekki verið með á æfingu á föstudaginn. Á föstudaginn skelltum við stelpurnar okkur í bæinn. Þrátt fyrir kreppu þá keypti ég mér peysu og tösku, bæði reyndar á útsölu og mér tókst ekki að eyða nema 5000 íslenskum krónum. Það er allt rosalega dýrt hérna þó svo að það séu útsölur. Vonandi bara að krónan haldi áfram að styrkjast. Síðan í gær kíkti Brynhildur í heimsókn. Hún stoppaði reyndar stutt en ætlar að koma aftur í febrúar og vera þá lengur. Í gærkveldi fórum við bara á barinn hérna í skólanum. Stemming þar eins og alltaf þó svo að mjög margir nemendur hafi farið heim þessa helgi. Dagurinn í dag hefur síðan verið notaður til að liggja í leti og búa sig undir næstu viku því þá þarf ég að vakna snemma því minn hópur á að þrífa skólann á hverjum morgni út vikuna. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili því þvottavélin fer að verða til. Bið að heilsa öllum og vona að fólk njóti þorrans. -Sunna Björk
»
Síður: 1 2 3 4
|
Heimsóknir
Í dag: 8 Alls: 23114
|